Sídustu helgi fórum vid til Lago de Atitlan sem er vatn hérna í guatemala sem er umvafid fjollum og eldfjollum, rosalega fallegt. Thetta var ótrúlega fín ferd nema ad ég hef aldrei á aevi minni ordid jafn hraedd í spíttbát! Vid gistum eina nótt í San Pedro og fórum svo til Panachacel og svo til SantaCruz til ad heimsaekja prójekt sem hún Unnur, vinkona mín, er ad fara ad vinna í. Vinnan mín er svo mikid aedi! Ég hef samt svo miklar áhyggjur af einum uppáhaldsstráknum mínum, honum Guerner, sem er búinn ad vera á spítala sídan um helgina. Mér var samt sagt ad honum lídi betur en ég vil bara fara ad fá hann heim! Í gaer sá ég um ad klaeda hann danielito, sem er uppáhaldid mitt, og hann var svo ótrúlega fínn! Ég valdi hvítann pólóbol og rondóttar bláhvítar gallastuttbuxur, hann var sko algjor toffari! Svo kommst ég ad thví hvad hann er gamall, thriggja ára. Á mánudaginn kom nýtt barn sem var bara 25 daga thegar hann kom. Hann heitir Juan Puablo eftir páfanum. Greyid hann er svo ótrúlega mjór, ég var ad tala vid konu í dag og hún sagdi ad bornin koma eiginlega oll svona ung og eru oll eins og beinagrindur. Heida var rétt í thessu ad lesa um thad ad veiran veldur naeringarskorti sem útskýrir ýmislegt. Sem útskýrir einnig ástandid á fullordna fólkinu hjá okkur, thau eru oll eins og lifandi lík, ekkert nema beinin greyin. Úff, ég gerdi svo vandraedalegt um daginn, einhver krakki kúkadi á ganginum og ég aetladi ad fara inn og segja hjúkrunakonunum thad. Thá fattadi ég ad ég kann ekki ad segja kúka nema, skíta eda púpú, sem er svona barnamál. Thannig ad ég fór inn til theirra og sagdi, eitthvad barn púpúadi á ganginum. Theim fannst thetta alveg rosalega fyndid og reyndu eins og thaer gátu ad halda nidri í sér hlátrinum. Svo fór ég heim og aetladi ad leita ad betra ordi í ordabókinni og kommst ad thví ad ég veit ekki hvernig madur segir kúka á ensku heldur. Thannig ad ef einhver veit eitthvad betur en taking a shit thá megid thid endilega láta mig vita! Straetógaurarnir eru farnir ad slást um okkur heidu Lind thegar vid komum á leidinni til Antigua. Í fyrradag thá var einn farinn ad toga í mig frá odrum straetó og annar ad toga í Heidu Lind frá hinum straetónum og hann togadi fastar thannig ad vid fórum thangad. Svo í dag thá fannst okkur straetóinn svo fullur ad vid aetludum ad taka naesta og foldum okkur b akvid troppur en madurinn kom thangad og fór ad segja hvad thad vaeri haettulegt fyrir svona fallegar og yndislegar stelpur ad bída hérna og vid yrdum bara raendar! Og hann dró okkur inn í straetóinn... thad er fáránlegt hvad thessir menn gera ekki fyrir 7 Q!! Annars er bara alveg óbaerilega hheitt hérna og madur svitnar standandi! Hrikalegt!